Skólasetning 2018

Nemendur Kópavogsskóla mæta á skólasetningu fimmtudaginn 23. ágúst sem hér segir:

Nemendur í 2. - 4. bekk mæta kl. 9:00 í sal skólans

Nemendur í 5. - 7. bekk mæta kl. 10 í sal skólans.

Nemendur í 8. - 10. bekk mæta kl. 11 í sal skólans

Haft verður sambandi við foreldra nemenda 1. bekkjar og þeir boðaðir í einstaklingssamtöl 23. ágúst eða 24. ágúst. Frístund er lokuð 23. ágúst en opin föstudaginn 24. ágúst.

Í framhaldi af skólasetningu fara nemendur í stofur og ræða við umsjónarkennara.  

Fyrsti kennsludagur í 2. - 10. bekk er 24. ágúst samkvæmt stundaskrá.

 

1. bekkur.
Haft verður sambandi við foreldra nemenda 1. bekkjar og þeir boðaðir í einstaklingssamtöl 23. ágúst eða 24. ágúst. Frístund er opin fyrir nemendur frá kl. 8:00 föstudaginn 24. ágúst.
Þau mæta fyrsta skóladaginn sinn mánudaginn 27. ágúst kl. 08:30.


Nýskráðir nemendur.

Öllum nýskráðum nemendum skólans (öðrum en nemendum 1. bekkjar) er boðið að koma í heimsókn þriðjudaginn 21. ágúst kl. 15 til að hitta umsjónarkennara og ganga um skólahúsnæði.


Námsgögn:

Kópavogsbær mun útvega námsgögn fyrir alla nemendur nema skóatöskur, íþróttafatnað og góð heyrnatól (sem ná yfir eyrun) vegna vinnu með snjalltækjum. Það þurfa foreldrar að kaupa fyrir börn sín.