Mynd sótt á vef www.vedur.is
- Skóla er aldrei lokað í óveðri nema fyrir tilstilli almannavarnanefndar. Foreldrar verða að geta treyst því að skóli sé opinn hafi almannavarnir eða skólaskrifstofa ekki gefið út sérstaka tilkynningu um annað.
- Ætlast er til að foreldrar meti sjálfir hvort þeir senda börn sín í skóla þegar óveður geisar. Sé þeim haldið heima þarf að tilkynna það til skóla eins og önnur forföll. Séu börnin hins vegar send í skóla er þess vænst af foreldrum að þeir fylgi börnum sínum í skólann og sæki þau að loknum skóladegi.
- Ætlast er til þess af þeim kennurum sem kenna í síðasta tíma á stundaskrá hvers bekkjar að þeir sjái svo um að börnin fari ekki ein út í óveður að afloknum skóladegi. Heimferð þeirra sé tryggð - ella sé börnunum haldið í skóla þar til foreldrar sækja þau eða aðrar ráðstafanir hafa verið gerðar.
- Telji foreldrar vafasamt að senda börn í skóla vegna óveðurs áréttar skólinn að aldrei sé teflt í tvísýnu, öryggi barnanna sitji ávallt í fyrirrúmi.
- Verði símasambandslaust við skólann þegar óveður geisar er ætlast til þess að börnin verði kyrr í skóla þar til þau verða sótt eða þeim tryggð örugg heimferð (sjá lið 3).
Nánar um óveður er að finna undir tenglingum "Hagnýtt" á forsíðu vefsíðunnar.