24.10.2018
Hrekkjavaka verður haldin í skólanum í næstu viku samkvæmt auglýstri dagskrá.
30.09.2018
Fimmtudaginn 11. október fer fram samtal foreldra, nemenda og umsjónakennara. Sérgreinakennarar og sérkennarar verða einnig til taks þennan dag ef óskað er eftir samtali við þá. Opnað hefur verið fyrir frammistöðumat nemenda og foreldra í Mentor. Skráning í samtal opnast 3. október í Mentor.
27.09.2018
Ólöf Katrín tónmenntakennari hefur tekið saman nokkur samsöngslög. Það er um að gera að æfa þau bæði heima og í skólanum þegar tækifæri gefst. Nemendur fá að velja með tónmenntakennara lög til að syngja á sal og svo fá þau að velja eitt danslag í lokin (Just Dance). Listi yfir lögin má finna hér neðar í fréttinni.
25.09.2018
26. september er alþjóðlegi tungumáladagurinn.
23.09.2018
Minnum á að meðan ný heimasíða skólans er í vinnslu er hægt að nálgast upplýsingar af eldri síðunni...
31.08.2018
Kynningarfundir verða haldnir í skólanum á næstu tveimur vikum. Sjá nánar...
28.08.2018
Á bókasafni Kópavogsbæjar er boðið upp á aðstoð við heimanám sl. tvö skólaár. Við byrjum aftur í næstu viku, 4. september. Heimanámið fer frá á aðalsafni á þriðjudögum frá kl. 14.30 - 16.30 og á Lindasafni á miðvikudögum á sama tíma. Allir grunnskólanemendur eru velkomnir, en stærsti hópurinn sem hefur verið að nýta sér þetta er af miðstigi. Ágústa Bárðardóttir heldur utan um verkefnið, en hún er menntaður kennari með yfir 20 ára starfsreynslu. Nemendur hafa verið að koma með heimanámið sitt, en sum sem eru af erlendu bergi hafa komið með íslenskuefni sem þau eru að vinna.
09.08.2018
Nemendur Kópavogsskóla mæta á skólasetningu fimmtudaginn 23. ágúst sem hér segir:
Nemendur í 2. - 4. bekk mæta kl. 9:00 í sal skólans
Nemendur í 5. - 7. bekk mæta kl. 10 í sal skólans.
Nemendur í 8. - 10. bekk mæta kl. 11 í sal skólans
Í framhaldi af skólasetningu fara nemendur í stofur og ræða við umsjónarkennara. Fyrsti kennsludagur í 2. - 10. bekk er 24. ágúst samkvæmt stundaskrá.
1. bekkur.
Haft verður sambandi við foreldra nemenda 1. bekkjar og þeir boðaðir í einstaklingssamtöl 23. ágúst eða 24. ágúst. Frístund er opin fyrir nemendur þessa daga.
Þau mæta fyrsta skóladaginn sinn mánudaginn 27. ágúst kl. 08:30.
Öllum nýskráðum nemendum skólans (öðrum en nemendum 1. bekkjar) er boðið að koma í heimsókn þriðjudaginn 21. ágúst kl. 15 til að hitta umsjónarkennara og ganga um skólahúsnæði.
Námsgögn:
Kópavogsbær mun útvega námsgögn fyrir alla nemendur nema skóatöskur, íþróttafatnað og góð heyrnatól (sem ná yfir eyrun) vegna vinnu með snjalltækjum. Það þurfa foreldrar að kaupa fyrir börn sín.
07.08.2018
Frístundaheimili Kópavogsskóla fyrir verðandi nemendur 1. bekkjar opnar miðvikudaginn 8. ágúst kl. 8:00. Skráningar fóru fram sl. vor og foreldrar allra nemenda sem eru skráðir eiga að hafa fengið tölvupóst með öllum upplýsingum.